Jónsmessunótt..!
Jæja, núna er jónsmessunótt og ég er í Englandinu góða. Var að velta fyrir mér hvort ég ætti að fara út nakin og velta mér í dögginni eða finna dýr hérna í kring og heyra þu tala. Ákvað samt ekki að fara nakin út að velta mér í dögginni þó svo að það yrði alveg yndislegt í þessum hita sem er búin að vera hérna.
Ég sit núna hérna í nýju íbúðinni minni sem er reyndar ekki alveg mín. Þannig er mál með vexti að lítil fjölskylda sem býr hérna (bróðir hans Alexar og kona hans og barn) fóru í ferðalag í næstum 3 mánuði og ég fékk að passa húsið þeirra þannig að ég er flutt. Núna er ég sem sagt ein í íbúð sem nokkuð skrýið en rosa gott. Rosa sæt og lítil íbúð, er alveg að fíla hana.
Lífið mitt hérna úti er nú búið að vera rosa busy. Ég er búin að vera kenna alveg rosa margar kennslustundir allar um fóstureyðingu, sjálfsmorð og svo um fordóma þannig að þetta voru mjög tilfinningaríkar og góðar kennslustundir og gaman að heyra hvað krökkunum fannst um allt þetta. Ég elska að kenna krökkunum hérna úti!
Eva Kristín (litla) frænka mín er hérna úti hjá mér og er búin að vera í 2 vikur. Rosa gaman að hafa hana hérna.
En jæja, ég veit að ég sökka að blogga en ég reyni þó hehehehe!!
Gleðilegan Jónsmessudag… or something…
Hanna Sirrý

Tóti sagði,
júní 26, 2006 kl. 6:28 pm
Já, gaman að heyra í þér!
Beta sagði,
júní 28, 2006 kl. 11:58 pm
Lookin’ forward to see ya my love…in the great country of David’s Beckam right foot, his left foot…Harry Potter, Led Zeppelin, Coldplay og svo mætti lengi telja (að hluta til stolið úr love actually)!!!
Get ekki beðið! Er alltaf að tala um England og spjalla við Breska túrista á veitingahúsinu
renee wilson sagði,
júlí 7, 2006 kl. 5:47 pm
i like when you write your blogs in English